Guðbjörg Sandra Gunnarsdóttir
Countdown started
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1273 dögum
Flyt ég til Danmerkur
Textabox
Hey..how are u'doin..? ;)
Myndasöfn
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 7 apríl
20.01.2009 19:22:50 / gugga

Já Sæll....

*7Dagar í Próf*

  • sjetturinn....
  • er uppí skóla....
  • reyndar að horfa á fréttirnar hehe en fer alveg að fara að læra aftur...
  • Það er bara ekkert að frétta
  • Blóta Cross section
  • Vill komast heim að sofa haha

blogga aftur eftir próf....

Wish me luck....!


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.01.2009 21:16:26 / gugga

Gleðilegt nýtt ár :)

.

» 1 hafa sagt sína skoðun

11.12.2008 16:32:13 / gugga

Take me out!

Já sælll....

ég kem sem sagt já heim á MORGUN!!!!!!
eða til rvk og ætla að djúsa með stelpunum fyrir sunnan og fara heim til ak á laugardaginn...
...þar mun bíða mín öll fjölskyldan mín fyrir utan andrés sem mun vera að vinna og að auki amma mín sem kom í heimsókn....og þar verður kaffi kakó og kökurnar hennar mömmu....:D
jibbí....


hlakka til að sjá ykkur öll....
KNÚS....


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.12.2008 21:54:30 / gugga

skiluruskiluruekki.....

6 Dagar :)

Eftir skuggalega mikið djamm í gær ætla ég að slaka á í kvöld og fara snemma í háttinn ;)
Var klárlega besta djammið hérna í Horsens -hingað til- í gær...og ég tók engar myndir þess til sönnunar hehe...
Það verður mikið að gera í næstu viku, þar sem ég kem heim næsta föstudag, þarf að gera eitthvað svo mikið finnst mér...
held að fáir átti sig á því hvað mér hlakkar til að koma heim, var að tala við mömmu áðan og fann hvað ég var eitthvað einmanna ein heima og ekkert í sjónvarpinu en samt alveg það þreytt að ég nennti ekki út.

æj ætlað fara að sofa og gera eitthvað af viti á morgun, annað en að sofa hehe..

sjáumst fljótlega....:D

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.11.2008 12:14:37 / gugga

17 Dagar.

17. Dagar í ísland og ég er orðin nokkuð spennt...
ætti kannski að byrja að pakka niður ?! :p hehe

erum að fara í einhvern svona group guidance meeting í skólanum og er bara að bíða eftir að klára það af og fara svo að þvo þvott og laga til heima eftir helgina....ekki gaman að hafa allt í rusli...

fæ námslánin mín i þessari viku og get ekki beðið...

var að setja inn myndir á www.123.is/gugga_sandra en þeir sem eru með facebook eru eflaust búnir að sjá þessar myndir þannig að....

ekkert slúður í dag...

xoxx :*


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.11.2008 16:59:54 / gugga

Smá jólafiðringur ;)

já það er nú farið að örla á honum hjá mér ;)
hlakkar til að koma heim í smá jólastemmingu.
lífið hérna í Horsens er nú nokkuð ljúft fyrir utan smá heimþrá annað slagið...
Sissa farin heim, fór í dag og það er soldið svona tómt eitthvað...
Var að koma heim úr bænum, keypti 3 jólagjafir og sit núna hérna í herberginu mínu nýbúin að leggja á mömmu í símanum og hlusta á íslensk jólalög á leiðinni í ljós eftir smá.
þetta gerist nú varla betra :p

Fór aðeins of seint í skólann í dag...sat síðan í skólanum og var að vinna í autocad og hugurinn var kominn heim, langar svo að knúsa alla í klessu og heyra allt slúðrið sem ég hef misst af....taka nokkra hringi með sóley og sjá alla sætu strákana mína sem ég á hahahaha ;)

hlakka til að hlusta á tuðið í föður mínum og "vælið" í litla bróður mínum, fótboltastundum með strákunum, spjallið við mömmuna mína og okkar æðislegu systrastundum ;)
taka ísrúnt í brynju og labba niðrí kirkjugarð í snjónum...
vantar pinacoladað okkar systranna og mojito, vantar dans á kaffi akureyri og vantar knús frá sóley og vantar reality check frá heiðrúnu....
vantar víking gylltan og vantar stórann Thule í gleri.....
vantar mömmumat í mallann og vantar kitlistund með hermanni...
vantar held eg allt sem tengist íslandi....
eftir góðann sprett á íslandi mun ég skrifa pistil um allt sem ég sakna og vantar frá Danmörku...
en ísland er alltaf í 1.2.3 sæti...
skál (í Carlsberg) þangað til við heyrumst næst...

XOXO
Gugga Gunn

» 4 hafa sagt sína skoðun

08.03.2008 16:32:57 / gugga

Ný Bloggsíða.


Koma svo fólk...


www.123.is/gugga_sandra


skiljiði eftir ykkur spor þar....!


Kv.


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.02.2008 21:31:52 / gugga

Viðbjóður...

Eigum við eitthvað að ræða þetta eða.......


http://pic80.picturetrail.com/VOL979/3725769/18806981/305705633.jpg
http://pic80.picturetrail.com/VOL979/3725769/18806981/305705631.jpg


en annars allt gott að frétta hérna megin.
stelpurnar að koma í visit næstu helgi :D held að það sé bara djamm á dagskránni.....:lol::lol::lol:



XOXO
Gossip Girl
:haha:


» 6 hafa sagt sína skoðun

18.02.2008 16:08:37 / gugga

Manchester United tóku Arsenal í R*******ð....

Komnir á skrið á ný eftir þokkalega niðurlægingu á Old Trafford gegn City...

Komnir í átta liða úrslit í FA Cupinum...á meðan erkifjendur þeirra Liverpool og Arsenal eru dottnir út...

Er stolt af mínum mönnum...og ég krosslegg fingur um að þeir taki þrennuna þetta árið...:D


annars er voðalega lítið að frétta..

later

» 7 hafa sagt sína skoðun

15.02.2008 17:34:45 / gugga

Breyting á nafni.

ATH.

Vegna breytinga á blogcentral.is varð ég því miður að breyta slóðinni á síðunni minni þ.a.l. er slóðin ekki lengur www.gugga_sandra.blogcentral.is heldur www.gudbjorgsandra.blogcentral.is

þá er það komið til skila.

XOXO
Gossip Girl
;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.02.2008 18:05:42 / gugga

Eigum við eitthvað að ræða það eða???

 nei hélt ekki.

 

Ókey...

Uhm sennilega kominn tími á blogg....

eða...

Er búin að setja nýjar myndir inn...endilega kíkið á þær...

......eru neðst undir Flórídajól2007.

Er bara búin að vera að reyna að kyngja því að ég sé að flytja....

....er ekkert að jafna mig á þessu....

...eins og allskonar smáatriðum sem ég þarf að gera sjálf....:lol:

kannski kominn tími til.....:haha:

æji...þetta verður bara fjör....eins gott að allir verða duglegir við að heimsækja mig...!

I'm done.

Latz.

 

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.02.2008 13:13:23 / gugga

Danapía

Já komiði sæl og blessuð..

Það eru nú aldeilis fréttir sem konan færir ykkur í dag, slúðrið að vild ;) eins og ykkur einum er lagið:$

Ég sendi umsókn í skóla í danmörku seinasta föstudag í arkitektúr og í dag fékk ég bréf aðeins viku seinna sem segir mig velkomna á haustönn 2008 í skólann þeirra....

Þar hafiði það ....kjéllan er að flytja til danveldis í sumar og hva er að gerast ég verð "nýbúi í baunalandi" :D :lol:

Vonandi fer þetta vel í ykkur!

blómvendir og kransar afþakkaðir.

kv.

Guðbjörg Sandra Gunnarsdóttir.

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.01.2008 16:25:19 / gugga

Já sæll..

ja

Gleðilegt árið....

Hef ekki nennt að blogga.

er víst komin heim frá Flórída, kom heim 27 des og eyddi áramótum með fjölskyldunni og síðan var náttúrulega sigrún, einar og stelpurnar hérna hjá okkur en einar fór seinasta föstudag og sigrún, borghildur og erla rós fara núna næsta föstudag því miður....

þau flytja nú heim í mai-júní og ég fer nú aftur í mai eftir prófin til að hjálpa þeim með stelpurnar á meðan þau pakka sig niður fyrir heimför. vonandi verður það bara fljótt að líða...

ég náði í stundatöfluna mína í gær og er bara rosalega ánægð með útkomuna, ég er í 18 einingum í dagskóla og 6 einingum í fjarnámi og síðan er tónlistarskólinn að byrja líka í þessari viku þannig að það verður mikið að gera hjá mér á þessari önn en hlakka bara til að fá að takast á við þau verkefni og hlakka til að útskrifast, það styttist óðum í það ef ég verð dugleg og klára þetta allt saman á þessari önn.....

hef verið að skoða skóla úti og er búin að finna skóla í englandi og reyndar líka í danmörku en veit nú ekki alveg hvort ég treysti mér til að vera í þessu námi á dönsku því það er ekki hægt að velja um tungumál.... en síðan er það bara listaháskólinn í reykjavík..veit ekki alveg þarf að skoða þetta betur....en fann samt skóla á spáni sem ég er soldið spennt fyrir en það er innanhúsarkitektur og húsgagnahönnun það nám og það er nú ekki alveg það sem ég hafði hugsað mér, en langar samt soldið að drífa mig út eftir arkitektinn í einhvern tíma til að fá nú betri innsýn á heildarmyndina sem ég held að sé nokkuð góð hugmynd.

en þetta er nóg í bili og ég bara bið að heilsa..:lol:


» 6 hafa sagt sína skoðun

16.12.2007 00:36:07 / gugga

florida

jæja þá er maður komin til flórída og allt er svo ljúft og gott.

erum búin að fara í Disney world sem var alveg ógleymanlegur dagur.

allir gleymdu ökuskírteininu sínu þannig að ég er bara desegnated driver þegar við höfum leigt bílaleigu bíl og keyrði ég til dæmis frá orlando til naples sem var soldið stressandi fyrst en fólkið hérna er frekar kurteist í umferðinni og gefur manni séns annað slagið....hehe

uhm við erum bara að versla og hafa það gott.

skruppum á djammið í gær og það var alveg brjálað gaman en endaði með ósköpum haha....

ég er búin að gera mig reddí á djammið í kvöld og er að fara að opna corona extra og setja í eina blöndu.

hafiði það nú gott krakkar mínir, over and out.! :)

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.12.2007 03:44:24 / gugga

hef ekkert að gera...greinilega

*6 Dagar í Flórída*

Hef ekkert að segja.

hafiði þetta.!

Ætti kannski bara að prufa nýja hrukkustraujárnið frekar.

ohhh þessir Bandaríkjamenn...!

hahahaha....oft verið að spá hvort það væri mikið um laumuhomma í fótboltanum...

hehe..hva í texas?

haha Sigrún farðu nú að slaka á í taco bell....hehe

 

later


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 16
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  13  Alls: 62314
Könnun
Hver er mín uppáhalds merkjavara?





Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Leitarbox